Fjölskylduráðgjafar til viðtals í Hvolnum.

Vegna margvíslegra áfalla sem dunið hafa yfir samfélag okkar síðustu mánuði býður kirkjan upp á viðtalstíma hjá fjölskylduráðgjöfum frá Sálgæslu-og fjölskylduþjónustu kirkjunnar. Fjölskylduráðgjafarnir munu hafa aðstöðu í Hvolnum á Hvolsvelli þriðjudagana 3. og 17. mars nk. Hægt er að panta viðtalstíma sem hér segir:

Andrea s. 856-1551 andrea@kirkjan.is (verður til viðtals 3. og 17. mars)

Guðrún s. 856-1561 gudrun.kolbrun.otterstedt@kirkjan.is (verður til viðtals 17. mars)

Heimafólk er hvatt til að nýta sér þessa fagþjónustu. En auk þess má minna á sálgæsluþjónustu hjá prestum í Rangárþingi.

Breiðabólsstaðarprestakall og Suðurprófastsdæmi

Sóknarprestur í fríi 24.febrúar til 08.mars.

Sóknarprestur Breiðabólstaðarprestakalls Kristján Arason er í fríi frá 24.febrúar til 8. mars. Gunnbjörg Óladóttir leysir hann af í fríinu en hægt er að ná í Gunnbjörgu í síma 843-4221.

Ath! Að kirkjuskólinn er þó alltaf á sínum stað kl. 16:15 á miðvikudögum í kósýstofunni í Hvolsskóla.